Terms of service
Eftirfarandi skilmálar gilda um viðskipti í vefverslun cbdrvk.is, sem rekin er af Adotta CBD Reykjavík ehf, kt. 620221-1040, Gvendargeisli 10, 113 Reykjavík. Með því að versla samþykkir þú skilmálana.
Vörur
Vörur okkar eru CPNP-skráðar snyrtivörur eingöngu til útvortis nota, prófaðar af óháðri rannsóknarstofu. Þær koma ekki í stað læknisráðgjafar.
Verð og virðisaukaskattur
Öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum og innihalda 24% virðisaukaskatt. Sendingarkostnaður bætist við í greiðsluferlinu þegar hann á við.
Pantanir
Pöntun telst staðfest þegar þú færð staðfestingu í tölvupósti. Adotta CBD Reykjavík ehf áskilur sér rétt til að hafna eða afturkalla pöntun, til dæmis ef villa kemur upp í verði eða lagerstöðu, eða ef vara er uppseld. Komi slíkt upp höfum við samband og endurgreiðum þá fjárhæð sem þegar hefur verið greidd.
Afhending
Um afhendingu gildir sendingarstefna okkar. Um skil og endurgreiðslur gildir skilaréttur.
Lög og varnarþing
Samningur þessi lýtur íslenskum lögum. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.