Refund policy

Við viljum að þú sért ánægð með kaupin. Ef eitthvað er ekki eins og þú væntir aðstoðum við þig í gegnum ferlið.

Skilaréttur

Þú hefur 14 daga rétt til að skila vöru frá því að þú færð hana. Til að skil séu samþykkt þarf varan að vera ónotuð, í óaðfinnanlegu ásigkomulagi og í óskemmdum upprunalegum umbúðum með órofnu innsigli. Af heilbrigðis- og hreinlætisástæðum er ekki hægt að taka við vöru þar sem innsiglið hefur verið rofið. Framvísa þarf dagsettum sölureikningi eða pöntunarnúmeri.

Hvernig þú skilar

Hafðu samband á cbdrvk@cbdrvk.is með pöntunarnúmerinu og við leiðbeinum þér áfram. Þú berð kostnað af endursendingu nema varan hafi verið gölluð eða röng.

Endurgreiðsla

Þegar við höfum tekið á móti vörunni og staðfest ástand hennar endurgreiðum við með sömu greiðsluleið og notuð var við kaupin, að jafnaði innan 14 daga. Sé um útsöluvöru að ræða miðast endurgreiðsla við verð á skiladegi.

Gölluð eða röng vara

Ef varan er gölluð eða þú færð ranga vöru skaltu hafa samband sem fyrst. Við leysum málið þér að kostnaðarlausu, annaðhvort með nýrri sendingu eða endurgreiðslu.

Sjá einnig Sending og skil fyrir nánari upplýsingar.